Illugi Gunnarsson

23. Febrúar, 2010

Ríkisstjórnin heimilar hækkun á innheimtukostnaði.

Vil vekja athygli á makalausri frétt Ríkisútvarpsins nú á dögunum.

Lámarksfjárhæð innheimtukostnaðar hefur verið hækkuð um 4-10% vegna launahækkana hjá skrifstofufólki innheimtufyrirtækjanna. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra segir hækkanirnar smávægilegar en nauðsynlegt sé að meta þennan kostnað á málefnanlegan hátt.

Viðskiptaráðuneytið setti í fyrra reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar, en henni var ætlað að lækka þennan kostnað miðað við gildandi gjaldskrá þeirra sem sjá um slíka innheimtu. Ekki höfðu áður verið settar neinar hámarksreglur um slíkan kostnað.

Með breytingunum á reglugerðinni hefur hámarksfjárhæðin nú verið hækkuð. Sem dæmi hækkar símtal í milliinnheimtu um 10%, eða úr 500 krónum í 550 krónur, og innheimtuviðvörðun hækkar úr 900 krónum í 950 krónur. Þá hækkar milliinnheimtubréf fyrir kröfu yfir 85 þúsund krónur úr 5500 krónum í 5900 krónur.

Hækkunin á milliinnheimtubréfunum er mismikil eftir því hversu há krafan er, en í einstaka tilvikum lækkar þó þessi kostnaður.

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra segir þessa breytingu ekki stóra. Breytingarnar taki tillit að einhverju leyti til hækkunar launakostnaðar starfsmanna innheimtufyrirtækjanna.

Gylfi telur hækkunina óverulega og að hún hafi ekki mikil áhrif á þá sem innheimta þarf skuld hjá. Fjárhæðin þurfi hins vegar að endurspegla kostnaðinn sem af innheimtunni hljótist. Taka verði tillit til kostnaðar með málefnalegum kostnaði. Þó launin hafi ekki hækkað mikið verði að taka tillit til þess.  (leturbreidd mín)

frettir@ruv.is”

Þetta er kannski ekki stór frétt. En hún sýnir í hnotskurn hvernig ráðherrar ríkisstjórnarinnar nálgast þann vanda sem heimilin í landinu eru að fást við. Laun eru hækkuð í innheimtufyrirtækjum og kostnaðinum við þá hækkun er velt yfir á þá sem nú geta ekki staðið í skilum. Þúsundir og aftur þúsundir íslenskra heimila eru allt í einu lent í vanskilum vegna efnahagshrunsins. Þá á ekki að heimila innheimtufyrirtækjuma að hækka álögurnar. Gylfi Magnússon átti bara að segja nei. Þetta eru mjög vond skilaboð sem koma frá ríkisstjórninni. Fyrir fólk í alvarlegum fjárhagsvanda þá er hækkun á innheimtukostanði óþolandi fréttir.

Senda á Facebook
Connect

Samfélag