12. Desember, 2009
Ríkisstjórnin neitar að horfast í augu við eigin tillögur
Þingflokksformenn VG og Samfylkingarinnar hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirra skattahækkana sem ríkisstjórnin boðar. Vegna þessa er rétt að taka fram:
Það er rangt hjá Ríkisstjórninni og formönnum þingflokka hennar að skattar muni lækka hjá þeim sem lægst hafa launin. Afnám vísitölutengingar persónuafsláttar er ígildi skattahækkunar á almenning og þar með þeirra sem hafa lægstar tekjur. Þetta er augljóst, þar sem virði persónuafsláttar minnkar vegna verðbólgu og því fylgja skattleysismörk ekki verðlagsþróun.
Þessi staðreynd var Steingrími J. Sigfússyni ljós árið 2003. Í grein í Morgunblaðinu þann 13 mars 2003 segir Steingrímur: „Það er staðreynd að fjöldinn allur af venjulegu launafólki á í miklum erfiðleikum með að ná endum saman. Kemur þar margt til, m.a. aukin skattbyrði undanfarin ár vegna þess að skattleysismörk hafa ekki fylgt verðlagsþróun.“
Skattbyrði láglaunafólks minnkar ekki með því að afnema lögbundna hækkun persónuaflsáttar, með hækkun virðisaukaskatts eða með nýjum sköttum á eldsneyti, rafmagn og heit vatn og ýmsum öðrum skattahækkunum. Hafi það verið markmið að hækka ekki skatta hjá láglaunafólki, þá hefur því markmiði augljóslega ekki verið náð.
Fullyrðingum formanna þingflokka VG og Samfylkingar um villandi framsetningu í kynningarefni Sjálfstæðisflokksins er hafnað og má finna svör við fullyrðingum þeirra á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is
Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar við þær aðstæður sem nú eru í íslensku efnahagslífi eru stórhættulegar og allar líkur eru á því að þær bæði dýpki og lengi þá kreppu sem nú stendur yfir. Heimilin í landinu þola ekki hærri skatta ofan á launalækkun, hærri afborganir á lánum og minni atvinnu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur bent á leiðir til að leysa vanda ríkissjóðs án þess að skattar verði hækkaðir. Þær tillögur hafa nú þegar verið lagðar fram á Alþingi.
Illugi Gunnarsson
Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
Senda á Facebook