10. Nóvember, 2009
Brjáluð leið
Áform ríkisstjórnarinnar um að stórhækka skatta á almenning og atvinnulífið eru hættuleg fyrir íslensk efnahagslíf. Mikill samdráttur hefur nú þegar orðið í efnahagslífinu og jafnframt er nauðsynlegt að draga saman ríkisútgjöldin. Minni ríkisútgjöld mun valda enn meiri samdrætti, og því nauðsynlegt að gera allt til að örva efnahagslífið. Það síðasta sem má gera við þessar aðstæður er að ráðast í gríðarlegar skattahækkanir. Þær munu auka enn á samdráttinn og framlengja kreppuna verulega.
Við þetta lánleysi ríkisstjórnarinnar bætist síðan að hún hefur komið í veg fyrir framkvæmdir (t.d. Helguvík og Straumsvík) og búið til óþolandi óvissu í sjávarútveginum (innköllun aflaheimilda).
Sjálfstæðisflokkurinn hefur bent á leiðir til að leysa vanda ríkissjóðs. Þær leiðir eru raunhæfar og byggja á því að koma hjólum atvinnulífsins eins hratt af stað og mögulegt er. Það er gert með fjárfestingu í orkufrekum iðnaði, auknum aflaheimildum og með því að flýta skattgreiðslum sem ríki og sveitafélög eiga inni í séreignarsparnaðinum. Þessi leið, leið Sjálfstæðisflokksins, hvílir á þeirri bjargföstu skoðun að með skynsamlegri nýtingu auðlinda og með því að hvetja fólk til að leggja hart að sér, munum við endurvekja skattstofna og þannig vinna okkur út úr vandanum. Ég hvet alla til að kynna sér þingmál okkar Sjálfstæðismanna sem við lögðum fram á dögunum. Þar er tíundað nákvæmlega til hvaða aðgerða þarf að grípa og hvernig þær skila árangri fyrir ríkissjóð.
Leið ríkisstjórnarinnar er dæmd til að mistakast. Það er ekki hægt að vinna sig út úr kreppu með því að hækka skatta upp úr öllu valdi.
Senda á Facebook