27. Febrúar, 2009
Varað við hruni
Grein Illuga og Bjarna Benediktssonar frá febrúar 2008
Til mikils að vinna
Lífskjör okkar Íslendinga hafa batnað gríðarlega síðastliðinn hálfan annan áratug. Svo mjög, að fá dæmi eru um slíkt meðal þeirra þjóða sem við berum okkur helst saman við.
Lesa meira Senda á Facebook25. Febrúar, 2009
Áherslur
Efnahagsmál
Íslensk efnahagsmál eru nú í meiri og alvarlegri óvissu en um langa hríð. Heimilin í landinu eru mörg í uppnámi, skuldir hlaðast upp, fasteignaverð lækkar og atvinnuleysi eykst jafnt og þétt. Fyrirtækin standa veikum fótum og gjaldþrot færast í vöxt.
Lesa meira Senda á Facebook25. Febrúar, 2009
Til sjálfstæðismanna
www.xd.is 25. febrúar 2009
Ágætu sjálfstæðismenn.
Við þurfum á næstu vikum að ákveða hvernig við viljum skipa framboðslistum okkar um land allt. Öllu máli skiptir að okkur takist vel upp, að við veljum gott og hæfileikaríkt fólk til að vera í forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Mikið hefur gengið á undanfarna mánuði og prófkjörin eru fyrsta skrefið sem við tökum í átt til endurnýjunar flokksins okkar. Þess vegna verður Sjálfstæðisflokkurinn að koma sterkari frá prófkjörunum heldur en hann gekk til þeirra.
Lesa meira Senda á Facebook17. Janúar, 2009
Forræði yfir auðlindum skilyrði
17. janúar, 2009 - Morgunblaðið
ALLT frá því að ég hóf að skipta mér af stjórnmálum hefur afstaða mín til mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu byggst á þeirri sannfæringu að hagsmunum Íslands sé best borgið utan sambandsins.
Lesa meira Senda á Facebook24. Maí, 2008
Var úrskurður Skipulagsstofnunar um Bitruvirkjun góður?
24. maí, 2008
Nýting og verndun
Niðurstaða Skipulagsstofnunar um Bitruvirkjun er skýr og engin ástæða er til að ætla annað en að stofnunin hafi unnið sína vinnu eftir bestu getu og samvisku. En það er rétt að hafa í huga að þrátt fyrir að hér hafi opinber stofnun lagt mat á ákveðið úrlausnarefni er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að komast með málefnalegum hætti að annarri niðurstöðu. Skipulagsstofnun er hvorki óskeikul né handhafi sannleikans í þessum málum.
Lesa meira Senda á Facebook3. Maí, 2008
Á einkarekstur erindi í heilbrigðisþjónustuna?
Birt í Fréttablaðinu 3. maí 2008
Heilbrigðisþjónusta til framtíðar
Heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga stenst samanburð við það sem best gerist hjá öðrum þjóðum. Lífslíkur eru með þeim hæstu í heiminum og þjónusta sem veitt er á spítölunum er talin mjög góð.
Lesa meira Senda á Facebook6. Apríl, 2008
Þarf að breyta stjórnarskránni til að koma í veg fyrir framkvæmdi í Helguvík?
Birt í Fréttablaðinu 6. apríl 2008
Verndum umhverfið og stjórnarskrána
Niðurstaða Þórunnar Sveinbjarnadóttur umhverfisráðherra vegna kæru Landverndar virðist vera vel rökstudd og málefnaleg. Sú skoðun ráðherrans að hún hefði gjarnan viljað komast að annarri niðurstöðu hljómar kannski nokkuð sérkennilega, því vart verður því trúað að önnur sjónarmið hafi verið uppi hjá umhverfisráðherra en þau að komast að réttri niðurstöðu í samræmi við lög og rétt.
Lesa meira Senda á Facebook24. Febrúar, 2008
Voru kjarasamningar skynsamlegir?
Birt í Fréttablaðinu 24. febrúar 2008
Lífskjör kunna að versna
Það besta við kjarasamningana sem voru undirritaðir á dögunum er að þeir byggja á þeirri hugsun að reyna að hækka við þá sem lægst hafa launin, án þess að sú hækkun hlaupi upp allan launastigann. Vonandi er að sá vilji gangi eftir.
Lesa meira Senda á Facebook30. Desember, 2007
Er þörf á að endurskoða embætti forseta Íslands?
Kæri forseti
Nú veit ég ekki frekar en aðrir hvort þér hyggist bjóða yður fram til endurkjörs á næsta ári; væntanlega skýrist það á nýársdag í ávarpi yðar til þjóðarinnar.
16. Desember, 2007
Á að kenna kristinfræðslu í grunnskólum
Birt í Fréttablaðinu 16. desember 2007
Trú og saga
Samspil trúar og ríkisvalds er eitt viðkvæmasta og erfiðasta deilumál sögunnar. Borgarastyrjaldir og milliríkjaátök hafa orðið vegna mismunandi skoðana manna á málinu og leitun er af því deiluefni sem er eldfimara í mannlegu samfélagi.
Lesa meira Senda á Facebook